Aðventan og Kiwanis !
Nú er aðventan gengin í garð og er hún annamesti tíminn í starfinu hjá Kiwanisklúbbnum Ós en þá er mikilvæg fjáröflun í gangi. Söfnunarfé er notað til að bæta samfélagið og gera það betra fyrir börnin okkar en Kiwanishreyfingin hefur það að markmiði sínu hjálpa börnum í heimabyggð og reyndar í heiminum öllum.
Fyrir jólin seljum við jólatré, jólalakkrís, friðarkerti og jóladót í skóinn sem er nýtt verkefni en ágóði af því fer í verkefni í samráði við Grunnskóla Hornafjarðar. Við þökkum þeim fyrirtækjum sem komið hafa verkefninu með auglýsingum á jólaskókassann. Önnur nýjung er Jólaþorp Kiwanis við Miðbæ með sölubásum ýmissa góðgerðarsamtaka og vonumst við að vel gangi svo það gæti orðið framhald á næsta ári.
Við viljum sérstaklega að þakka fyrirtækjunum; Mikael, Þingvaði, Flytjanda, Ajtel, Martölvunni, Hans Christensen, Húsasmiðjunni sem og öllum klúbbfélögunum sem lögðu hönd á plóginn við uppsetningu Jólaþorpsins, pökkun á jólaskókössum, skreytingu jólatrjáa, skógarhöggi í Steinadal og Hofelli. Skógræktarfélag Suðursveitar hefur haft veg og vanda að skógrækt í Steinadal og þökkum við þeim fyrir að leyfa okkur að höggva furu. Ekki má gleyma honum Þrúðmari í Miðfelli sem valdi öll fallegu jólatrén í skógræktinni þar.
Ós styrkir 550.000 kr nú fyrir jólin gegnum Samfélagssjóð Hornafjarðar með Nettó inneignarkortum. Það væri ekki væri hægt nema vegna góðvildar og hugulsemi ykkar Hornfirðinga í garð náungans.
Kiwanishreyfingin hefur starfað á Íslandi síðan 1962 og fer starfsemin vaxandi. Það er þó alltaf hægt að taka á móti nýju og áhugasömu fólki en Kiwanis er með fjölbreytt klúbbastarf meðal bæði karla og kvenna. Hér á Hornafirði er það karlaklúbbur sem er starfandi en við höfum mikinn áhuga á því að stofna kvennaklúbb á svæðinu og efla þar með starfið enn frekar.
Kiwanis er alþjóðleg hreyfing sem starfar í þágu barna og er Kiwanis Children Fund sjóður Kiwanis International fljótur að bregðast við þar sem er þörf t.d. vegna stríðshörmunga. Það má nefna að Ós gaf fyrr á þessu ári veglega í sérstaka söfnun sem gerð var hjá öllum Kiwanisklúbbum í Evrópu vegna átakanna í Úkraínu.
Kæru Hornfirðingar – um leið og við þökkum fyrir frábærar undirtektir við fyrri fjáraflanir þá biðjum við enn á ný um vinsemd og hlýjar móttökur fyrir þessi jól. Um leið erum við að styrkja bæði samfélagið okkar og eins þar sem þörf er á. Það veitir okkur öllum gleði að geta hjálpað þar sem þörf er á. Við óskum öllum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Kiwanisklúbburinn Ós



Posted: September 15, 2025 by seinars Leave a Comment
Starf hjá Ós 24-25
Nokkrir félagar fengu Ruby-K merki frá Kiwanis fyrir framúrskarandi árangur við að fjölga í Ós með nýjum félögum en það er Stefán Brandur, Ingvar, Geir, Gunnar og Jón Áki. Stefán Brandur fékk frá Ós félögum gullstjörnu með rúpín. Klúbburinn er NEO klúbbur hjá Kiwanis Evrópu 2023-2024 en það er fyrir að hafa tvo nýja félaga undir 40. ára og vonast Jonni forseti eftir því að það verði líka starfsárið 2024-2025.
Um níu félagar og makar fóru á Kiwanis Evrópu þing dagana 16.-17. maí og svo verða nokkrir Ós félagar á umdæmisþingi í september í Kópavogi til að styðja félaga sinn Sigurð Einar núverandi kjörumdæmisstjóra. Sumarhátíð var hjá Ós í sumar laugardaginn 14. júní. Það má segja að það verður verður mikil gleði á Hornfirðingum enda miklir gleðipinnar.
Með Kiwaniskveðjum
Stjórn Kiwanisklúbbsins Ós 2024-2025