Starf hjá Ós 24-25

Starfsárið 2024-2025 hjá Kiwanisklúbbnum Ós hefur verið skemmtilegt og líflegt hjá okkur. Góðgerðarveisla var haldinn 6 október þar sem svæðisstjóri Tómas Sveinsson skipti um stjórn og þar voru teknar inn fjórar konur í hliðarklúbbinn og ágóði af G-veislu rann í Styrktarsjóð hjá Ós kr 300.000. Við tók skógarhögg og jólatrésala undir forystu formanns jólatrésnefndar félaga Friðþórs Harðarsonar sem fór svo til Tene til hvíla sig og ekki má gleyma Jólaþorp Kiwanis með ýmsum sölubásum og konurnar í hliðarklúbbnum höfðu sína fyrstu söfnun. Við erum búnir að taka inn 6 konur í hliðarklúbb hjá Ós og 3.-4. munu líklega koma inn í fljótlega í hliðarklúbbinn í haust. Jonni forseti hefur verið mjög duglegur með kjörumdæmisstjóra Sigurði Einari og félaga Sóma við að fá konur til liðs við Kiwanis. Stefnt er að stofna kvennaklúbb starfsárið 2025-2026. Jólatréssalan gekk ágætlega og söfnuðum við um 1.000.000 í Styrktarsjóðinn hjá Ós og veittum við 500.000 til tíu bágstaddra fjölskylda um jólin í samstarfi við Nettó gegnum Samfélagssjóðinn. En á þessu starfsári höfum við veitt styrki úr styrktarsjóð Ós allt að kr 1.200.000. Fleira sem var gert var okkar árlega páskabingó 19. apríl undir stjórn Ingvars formanns Páskaeggjanefndar og þar hjálpuðu konurnar í hliðarklúbbnum með öðrum félögum sem gengu saman í öll störf við bingóið og þar öfluðum við 400.000 kr í Styrktarsjóð hjá Ós. Hjálmum var dreift í Grunnskóla Hornafjarðar til sex ára barna og skein gleði hjá börnunum að fá gefna Kiwanis reiðhjólahjálma. Og við tókum þátt í K-lyklasöfnun hjá umdæminu til styrktar Einstökum börnum, algjörlega frábært verkefni.
Nokkrir félagar fengu Ruby-K merki frá Kiwanis fyrir framúrskarandi árangur við að fjölga í Ós með nýjum félögum en það er Stefán Brandur, Ingvar, Geir, Gunnar og Jón Áki. Stefán Brandur fékk frá Ós félögum gullstjörnu með rúpín. Klúbburinn er NEO klúbbur hjá Kiwanis Evrópu 2023-2024 en það er fyrir að hafa tvo nýja félaga undir 40. ára og vonast Jonni forseti eftir því að það verði líka starfsárið 2024-2025.

Um níu félagar og makar fóru á Kiwanis Evrópu þing dagana 16.-17. maí og svo verða nokkrir Ós félagar á umdæmisþingi í september í Kópavogi til að styðja félaga sinn Sigurð Einar núverandi kjörumdæmisstjóra. Sumarhátíð var hjá Ós í sumar laugardaginn 14. júní. Það má segja að það verður verður mikil gleði á Hornfirðingum enda miklir gleðipinnar.

Með Kiwaniskveðjum

Stjórn Kiwanisklúbbsins Ós 2024-2025

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Text